Bókasafnið okkar - ný leitarsíða

Það kennir ýmissa að grasa á bókasafninu í Framhaldsskólanum á Húsavík.

Þar eru yfirleitt margir nemendur nokkuð niðursokknir ofan í námsefni komandi verkefna og prófa, og enn aðrir að spila og spjalla.

Mjög góð námsstemning myndast í rýminu, sérstaklega á föstudögum þar sem vikan er gerð upp til þess að njóta helgarfrísins.

Við hvetjum nemendur til að nýta sér bókasafnið og allt efnið sem það hefur að geyma.

Smellið hér til að leita að efni á bókasafni Framhaldsskólans á Húsavík.