Bleiki dagurinn 2020

Í dag mættu nemendur og starfsfólk í ýmislegu bleiku til starfa.

Nemendafélagið skreytti kennslustofur með skemmtilegum og hvetjandi settningum á bleikum post-it miðum, bleiku nammi og bleikum blöðrum.

Á Bleika deginum eru landsmenn hvattir til að bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.