Í gær hlutu tæplega 30 nemendur styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ.
Meðal styrkþega var Axel Tryggvi Vilbergsson, fyrrum nemandi við FSH. Við óskum honum innilega til hamingju!
Úthlutað hefur verið úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands frá árinu 2008, alls nítján sinnum. Sjóðurinn styður afreksnema til háskólanáms en við mat á styrkþegum er þó ekki einungis horft til árangurs þeirra á stúdentsprófi heldur einnig annarra þátta eins og virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. Þá er stjórn sjóðsins heimilt að styrkja nýnema sem sýnt hafa fram á sérstakar framfarir í námi eða góðan námsárangur þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Frétt Háskóla Íslands við tilefnið má lesa hér.