Nýverið kom hópur nemenda úr Framhaldsskólanum á Húsavík heim frá Finnlandi þar sem þeir tóku þátt í Erasmus+ verkefni. Verkefnið tókst afar vel og hefur vakið enn frekari áhuga á alþjóðlegu samstarfi innan skólans.
Fram undan eru spennandi verkefni en skólinn hefur hlotið styrki til tveggja nýrra samstarfsverkefna næsta skólaár. Annars vegar er um að ræða Nordplus-verkefni í líffræði og stærðfræði í samstarfi við Randers Statsskole í Danmörku. Í því felst gagnkvæm heimsókn nemenda og kennara.
Hins vegar tekur FSH þátt í Erasmus+ verkefni þar sem nemendur munu ferðast til Spánar og kynnast sögu, menningu og daglegu lífi jafnaldra sinna við skólann IES Benejúzar.
Ljóst er að alþjóðlegt samstarf heldur áfram að skapa nemendum dýrmæt tækifæri til náms og reynslu.
