Laugardaginn 23. maí síðastliðinn útskrifuðust 38 nemendur frá Framhaldsskólanum á Húsavík. 26 nemendur luku stúdentsprófi, 3 luku námi af heilsunuddbraut, 8 luku námi af sjúkraliðabrú og einn nemandi lauk námi af starfsbraut.

Háttíðarræður fluttu Halldór Jón Gíslason skólameistari, Rakel Dögg Hafliðadóttir félags- og forvarnarfulltrúi og Davíð Leó Lund og Hörður Mar Jónsson fyrir hönd nýstúdenta.
Davíð Leó Lund útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi að þessu sinni.

Katla María Guðnadóttir nýstúdent flutti tónlistaratriði.
Mikill fjöldi fyrirtækja og samtaka komu að því að veita nemendum gjafir fyrir góðan námsárangur og félagsstörf í þágu skólans þetta árið og sýna þannig stofnuninni og nemendum mikla velvild. Verðlaun gáfu:
Danska sendiráðið
Efnafræðifélag Íslands
Fjallasýn
Fosshótel
Framsýn
Hérna
HÍ
HR
Íslandsbanki
Lyfja
Menningarsjóður Þingeyskra kvenna
Norðlenska/Kjarnafæði
Norðurþing
Penninn
Rótaryklúbbur Húsavíkur
Sjúkraliðafélagið
Sparisjóður Þingeyinga
Trésmiðjan Rein
Val ehf
Þekkingarnet Þingeyinga
Fleiri myndir frá brautskráninginu 2026 má skoða hér: Myndir frá skólastarfinu