Útskriftarnemar í sínu fínasta pússi.
Laugardaginn 24. maí síðastliðinn útskrifuðust 23 nemendur frá Framhaldsskólanum á Húsavík. 19 nemendur luku stúdentsprófi, 3 luku námi af heilsunuddbraut og einn nemandi lauk bæði stúdentsprófi og námi af heilsunuddbraut.
Mikið var um dýrðir þennan daginn og nemendur verðlaunaðir fyrir frábæran árangur.
Dúx FSH var Axel Tryggvi Vilbergsson. Axel, sem er frábær námsmaður, lauk stúdentsprófi með meðaleinkunina 10, sem er stórglæsilegur árangur.

Axel Tryggvi er hér með hluta af verðlaununum sínum.
Dagurinn var þó einnig mikil tímamót þar sem Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari útskrifaði sinn síðasta hóp. Hún lætur af störfum í sumar eftir sjö ár í embætti skólameistara FSH. Valgerður var kvödd af aðstoðarskólameistara, Halldóri Jóni Gíslasyni og fyrrum formanni skólanefndar Hjálmari Boga Hafliðasyni.

Valgerður flutti ræðu þar sem hún fór yfir veturinn, starfið og brýndi fyrir viðstöddum mikilvægi stofnunarinnar, FSH, fyrir samfélagið okkar.
Að lokinni athöfn var viðstöddum boðið til veislu í húsnæði FSH. Þar er að myndast skemmtileg hefð sem vonandi er komin til að vera.
Við óskum nemendum okkar enn og aftur til hamingju með frábæran árangur. Við erum ótrúlega stolt af þessu unga fólki, þau eru okkur og samfélaginu til sóma.


Hægt er að skoða fleiri myndir frá þessum frábæra degi með því að smella áhlekkinn hér að neðan.
Myndir frá skólastarfinu.