HVAL2FR05(12) -

Framkoma, stjórnun og bátar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum er fjallað um framkomu leiðbeinanda um borð í hvalaskoðunarbát og hópstjórnun. Einnig er fjallað almennt um ferðaþjónustugeirann á Íslandi, mismunandi væntingar ferðamanna, dagleg störf um borð í hvalaskoðunarbát, hentugan klæðnað í sjóferðum, helstu rannsóknarverkefni tengd hvölum á Skjálfanda, hegðun og umgengni á hvalaslóðum og helstu tegundir báta sem notaðar eru við hvalaskoðun á Skjálfanda. Auk þess er farið yfir grunnatriði varðandi skyndihjálp. Lögð er áhersla á að nemendur geti tjáð sig um viðfangsefni áfangans á ensku.

Þekkingarviðmið

  • helstu atriðum sem einkenna örugga framkomu og góða framsögn
  • helstu atriðum sem hafa þarf í huga varðandi hópstjórnun og ólíkar væntingar hvalaskoðunargesta
  • helstu tegundum ferðaþjónustu á Íslandi
  • þeim störfum sem unnin eru um borð í hvalaskoðunarbát
  • grunnatriðum um siglingu báta
  • helstu tegundum báta sem notaðar eru við hvalaleiðsögn á Skjálfanda
  • helstu rannsóknarverkefnum tengd hvölum sem í gangi eru hverju sinni við Skjálfanda
  • IceWhale Code of Conduct varðandi hegðun á hvalaslóðum
  • helstu atriðum varðandi öryggi og þægindi farþega um borð í hvalaskoðunarbát
  • hentugum klæðnaði í sjóferðum
  • grunnatriðum skyndihjálpar

Leikniviðmið

  • stjórna hóp um borð í hvalaskoðunarbát á ensku
  • sýna af sér góða framkomu og þjónustulund
  • framkvæma mat og skoðun á slösuðum eða veikum einstaklingi
  • flytja slasaðan eða veikan einstakling á öruggan hátt
  • framkvæma blástursmeðferð og hjartahnoð og beita hjartastuðtæki
  • losa aðskotahlut úr öndunarvegi
  • búa um sár og stöðva blæðingu
  • veita viðeigandi meðferð við losti
  • spelka útlimi eftir áverka eða tognanir
  • veita fyrstu hjálp vegna brunasára, kals, ofkælingar og ofhitnunar.

Hæfnisviðmið

  • stjórna hóp af farþegum um borð í hvalaskoðunarbát með jákvæðri og öruggri framkomu
  • veita farþegum fullnægjandi upplýsingar um það sem fyrir augu ber
  • taka við grunnstjórn báts ef skipstjóri forfallast eftir að ferð er hafin
  • meta aðstæður og bregðast við þeim á réttan hátt ef slys eða bráð veikindi ber að höndum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is