STAR1SÚ05(16) - Skólalok og útskrift

Skólalok og útskrift

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum fá nemendur fræðslu um þá möguleika sem bjóðast að loknu námi varðandi frekara nám, störf og áhugamál. Fjallað er um mismunandi búsetuform, færslu heimilisbókhalds, áætlanir um matarinnkaup, skipulagningu heimilishalds og fleira tengt því. Þá er fjallað um réttindi, ábyrgð og skyldur einstaklinga sem borgara og þátttakenda í lýðræðissamfélagi. Einnig er fjallað um þátt stéttarfélaga og hlutverk þeirra í samfélaginu auk þess sem nemendur læra að lesa og skilja launaseðla. Jafnframt undirbúa nemendur útskrift að vori, skipuleggja fjáröflun og sameiginlegt ferðalag.

Þekkingarviðmið

  • hvað það þýðir að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðissamfélagi
  • hvað þarf til að búa í sjálfstæðri búsetu
  • hvaða möguleika hann hafi til frekara náms
  • hvar hann leitar eftir starfi og hvaða leiðir hann hefur til að fá það starf sem hann óskar eftir
  • mikilvægi frístundastarfa og félagslegrar virkni
  • heilsusamlegu líferni
  • skipulagningu útskriftar.

Leikniviðmið

  • halda heimilisbókhald
  • gera áætlanir um innkaup
  • framkvæma þrif á heimili
  • leita eftir upplýsingum á netinu um opinbera þjónustu
  • lesa launaseðil
  • lesa innihaldslýsingar með tilliti til hollustu
  • undirbúa og skipuleggja merkisviðburði eins og útskrift.

Hæfnisviðmið

  • meta möguleika sína hvað varðar nám, atvinnu, búsetu og áhugamál
  • skipuleggja heimilishald
  • nýta sér tómstunda- og félagsstörf sem henta
  • búa til eigin ferilskrá
  • njóta samveru við aðra og njóta líðandi stundar
  • lifa heilbrigðu lífi
  • undirbúa og skipuleggja merkisviðburði eins og útskrift.
Nánari upplýsingar á námskrá.is