SÁLF2IS05(11) - Inngangur að sálfræði

inngangur að sálfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er farið yfir grundvallaratriði sálfræðinnar. Fræðigreinin sálfræði er kynnt fyrir nemendum og fjallað er um eðli hennar, sögu og þróun. Helstu sálfræðistefnur eru kynntar og grunnhugtök. Þá er fjallað um starfssvið sálfræðinga og helstu undirgreinar. Fjallað er um samspil hugsunar, hegðunar og tilfinninga, sjálfsmynd, mannleg samskipti, þróun náinna sambanda og almennt um mannlegt eðli. Tvær sálfræðistefnur fá ítarlega umfjöllun, bæði á fræðilegan og hagnýtan hátt, en það eru námssálfræði og hugræn sálfræði. Nemendur læra um mismunandi tegundir náms og helstu rannsóknir á eðli minnis og kynnast rannsóknaraðferðum sálfræðinnar á bóklegan og verklegan hátt.

Þekkingarviðmið

  • þróun fræðigreinarinnar sálfræði
  • grundvallarhugmyndum sem móta kenningar í sálfræði
  • helstu frumkvöðlum í greininni
  • víðfeðmi sálfræðinnar og helstu undirgreinum hennar
  • hagnýtu gildi sálfræðinnar
  • leiðum sálfræðinnar til að útskýra hugsun, hegðun og tilfinningar manneskjunnar
  • mótunaröflum einstaklinga og hópa
  • helstu hugmyndum sem mótað hafa sálfræðina.

Leikniviðmið

  • beita helstu hugtökum sálfræðinnar á skýran og skilmerkilegan máta
  • skoða sína eigin hegðun og annarra út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
  • skoða eigin hugsun og tilfinningar út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
  • tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt.

Hæfnisviðmið

  • gera sér grein fyrir mótunaráhrifum umhverfis á sjálfan sig og aðra
  • gera sér grein fyrir samspili hegðunar, hugsunar og tilfinninga
  • yfirfæra sálfræðilega þekkingu á eigin sjálfsmynd
  • tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
  • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
  • framkvæma einfalda rannsókn og átta sig á helstu niðurstöðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is