LÍFF2AL05(11) - Almenn líffræði

almenn líffræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Eðli og hlutverk líffræðinnar sem vísindagreinar. Vísindaleg aðferðafræði og rannsóknaraðferðir líffræðinnar. Helstu efnaflokkar, bygging og starfsemi  frumunnar. Grundvallarþættir erfðafræði og þróunarfræði og fjölbreytni lífheimsins. Gerð og starfsemi vistkerfa og vistfræðileg áhrif mannsins á umhverfið. Leitast er við að nota líffræðileg dæmi úr nærumhverfi nemenda eftir því sem við verður komið.

Þekkingarviðmið

  • eðli og hlutverki líffræðinnar sem vísindagreinar.
  • vísindalegri aðferð og rannsóknaraðferðum líffræðinnar
  • helstu efnaflokkum lífvera og hlutverkum þeirra
  • gerð og starfsemi frumna
  • hlestu lögmálum erfðafræði og þróunarfræði
  • fjölbreytni lífheimsins
  • gerð og þróun íslenskra vistkerfa

Leikniviðmið

  • teikna einfaldar skýringarmyndir af líffræðilegum fyrirbærum
  • nota algeng rannsóknatæki eins og t.d. smásjár eða víðsjár

Hæfnisviðmið

  • tengja líffræði við aðrar vísindagreinar
  • auka þekkingu sína í líffræði, bæði í framhaldsnámi og sjálfsnámi
  • nýta þekkingu sína og leikni til að leysa verkefni, sem eru sambærileg en ekki þau sömu og hann hefur áður leyst.
Nánari upplýsingar á námskrá.is