ÍSLE3BÓ05(31) - Bókmenntir og tungumál frá landnámi til siðaskipta

Bókmenntir og tungumál frá landnámi til siðaskipta

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE2MÁ05(21) eða ÍSLE2MÁ04(22).
Í áfanganum er fjallað um íslenskar bókmenntir og sögu þeirra frá landnámi til siðaskipta. Nemendur fræðast einnig um orðaforða og beygingarkerfi fornmáls og öðlast þannig betri skilning á textunum og málfari þeirra. Auk þess tjá nemendur sig í ræðu og riti um fornbókmenntir, fá þjálfun í meðferð heimilda og skrifa ritgerð um efni áfangans. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslustundum.

Þekkingarviðmið

  • skiptingu bókmenntasögunnar í tímabil skráðra og óskráðra bókmennta
  • því hvenær menn hyggja að einkum hafi verið lögð stund á hverja bókmenntagrein á tímabilinu 800-1550
  • fornum bragarháttum, a.m.k. fornyrðislagi, ljóðahætti og dróttkvæðum hætti
  • sögu helstu eddukvæða og skiptingu þeirra í goðakvæði og hetjukvæði
  • helstu persónum hetjukvæðanna, hugmyndafræði þeirra og boðskap
  • algengustu yrkisefnum dróttkvæðaskálda
  • skáldamáli dróttkvæða og eddukvæða, heitum og kenningum
  • upphafi ritmennta á Íslandi, helstu skólasetrum til forna, fræðiritum, bókagerð og varðveislu handrita
  • grundvallarhugtökum um ritverk miðalda
  • helstu sérkennum konungasagna, biskupasagna, samtíðarsagna, Íslendingasagna, Íslendingaþátta, fornaldarsagna Norðurlanda og riddarasagna
  • orðaforða, orðmyndun og nokkrum helstu beygingareinkennum fornmáls í þeim textum sem lesnir eru, t.d. beygingu nafnorða, fornafna, lýsingarorða og sagna.

Leikniviðmið

  • lesa rit með fornu málfari
  • flytja fyrirlestur um efni áfangans þar sem gætt er að framkomu og framsögn
  • skrifa ritgerð á vönduðu máli um efni áfangans þar sem gætt er að samhengi í efni og meðferð heimilda
  • nota handbækur og hjálparforrit við stafsetningu, meðferð heimilda og framsetningu texta.

Hæfnisviðmið

  • taka saman nokkrar vísur eddukvæða og dróttkvæðar vísur, skilja þær og skýra vandlega og gera grein fyrir efni þeirra, heimsmynd og hugmyndafræði
  • nýta hugtök sem varða orðaröð og setningagerð við lestur dróttkvæða
  • lesa og skilja a.m.k. eina viðamikla Íslendingasögu og gert grein fyrir efni hennar og hugmyndaheimi
  • öðlast skilning á því hvaða áhrif fornbókmenntir hafa í nútímanum, t.d. á umhverfi fólks og menningu
  • tjá sig munnlega með áherslu á skýra framsögn og örugga framkomu
  • skrifa vandaðan texta þar sem samhengis í efni er gætt og heimildir eru notaðar á ábyrgan hátt
  • axla ábyrgð á eigin námi
  • taka virkan þátt í kennslustundum
  • beita lýðræðislegum vinnubrögðum í hópvinnu
  • tjá skoðun sína á námsefni, námsmati og fyrirkomulagi kennslu
  • tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is