ÍÞRF2ÞB05 - Íþróttafræði þjálfun

Skipulag þjálfunar, stefnumótun, þjálfun barna.

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í þessum áfanga er fjallað um íþróttaiðkun barna, þroskaferil, hreyfiþroska og í framhaldinu um hlutverk þjálfara. Nemendur læra grunnatriði þjálffræði, um þol, kraft, liðleika og tækni. Farið er í undirstöðu kennslufræði og skipulags. Nemendur læra einnig um heilbrigt líferni og íþróttameiðsli. Þá er fjallað um hlutverk þjálfarans og hann sem fyrirmynd.

Þekkingarviðmið

  • eðli íþrótta hjá börnum
  • þroskaferli barna
  • mikilvægi fjöldaþátttöku og jafnréttis allra til að njóta þjálfunar
  • helstu þáttum þjálffræði
  • íþróttameiðslum og forvörnum
  • skipulagi íþróttaþjálfunar
  • mikilvægi samskipta við foreldra og aðra sem tengjast íþróttum barna

Leikniviðmið

  • undirbúa og framkvæma íþróttatíma fyrir börn að 12 ára aldri
  • meta hvers konar æfingar henta yngstu iðkendum í íþróttum
  • bregðast við íþróttameiðslum
  • undirbúa íþróttatíma þannig að sem minnst hætta verði á óhöppum

Hæfnisviðmið

  • undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir íþróttir sem þeir þekkja
  • beita fjölbreyttum þjálfunaraðferðum
  • skipuleggja þjálfun þannig að allir fái jafna athygli og kennslu við hæfi
  • haga starfi sínu sem þjálfari svo að enginn verði fyrir einelti
  • búa til góðan liðsanda í hópnum sem þeir þjálfa
  • fylgjast með að hópurinn standi saman bæði utan og innan íþróttaæfingar
Nánari upplýsingar á námskrá.is