SÁLF2SM05 - Sálfræði og markmiðasetning

Sálfræði, markmið, íþróttafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Markmið áfangans er að nemendur bæti árangur sinn í hreyfingu, sem íþróttafólk, þjálfarar og í hinu daglega lífi með því að nýta hugræna eiginleika. Farið verður yfir helstu áhrifaþætti heilbrigðis, hugtakið heilsulæsi kynnt, og hvernig má nota þá nálgun til að ná markmiðum sínum. Fræðilegur grunnur áfangans er meðal annars sóttur í jákvæða sálfræði. Í áfanganum er farið yfir helstu viðfangsefni íþróttasálfræðinnar og fjallað um algenga geðheilsuþætti sem hafa áhrif á frammistöðu, s.s. hugræna þætti, hugsun, sjálfsmynd, áhugahvöt, streitu, kvíða og einbeitingu. Þannig fá nemendur yfirsýn á þætti sem hafa jákvæð og neikvæð áhrif á frammistöðu. Markmiðssetning er kennd og fjallað um kosti þess að nota skynmyndir og setja sér markmið og leiðir að markmiðum sínum, til að ná árangri. Að auki farið í fleiri þætti sem þarf til að ná árangri í íþróttum, s.s. slökun og slökunaraðferðir.

Þekkingarviðmið

  • Þeim hugrænu þáttum sem hafa áhrif á frammistöðu
  • Mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar
  • Mikilvægi jákvæðrar hvatningar í íþróttum
  • Áhrifum streitu og kvíða á frammistöðu
  • Heilsulæsi
  • Íþróttasálfræði
  • Mikilvægi markmiðssetningar á íþróttaárangur og í hinu daglega lífi
  • Einbeitingu, slökun og slökunaraðferðum

Leikniviðmið

  • Vinna markvisst með sjálfstraust og eflingar á sjálfsmynd
  • Koma auga á og minnka streitu og kvíða
  • Nýta sér hugræna þjálfun
  • Nýta sér heilsulæsi til að lifa heilbrigðum lífsstíl
  • Setja sér skammtíma- og langtímamarkmið
  • Nýta sér slökunaraðferðir til að ná stjórn á spennustigi í íþróttum og í daglegu lífi

Hæfnisviðmið

  • Bæta sig í sinni íþrótt og í daglegu lífi
  • Nota skynmyndir í íþróttum og daglegu lífi
  • Geta náð betri árangri sem íþróttaþjálfari eða keppandi
  • Ýta undir innri áhugahvöt hjá sjálfum sér og öðrum
  • Nýta andlegan undirbúning fyrir keppni og álag
  • Setja sér árangursrík markmið
Nánari upplýsingar á námskrá.is