KYNJ2KY05(11) - Kynjafræði

Kynjafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Félagsfræði/félagsvísindi á fyrsta þrepi.
Grunnáfangi í kynjafræði þar sem teknar eru fyrir birtingarmyndir og staðalmyndir kynjanna í fortíð og nútíð með áherslu á að greina stöðu kynjanna eins og hún er í dag víðsvegar um heiminn. Fjallað er um mikilvægi jafnræðis meðal borgara í lýðræðisþjóðfélagi. Í því sambandi verður unnið sérstaklega að greiningu á þeim menningarlega og félagslega mun sem einkennt hefur stöðu kynjanna í samfélaginu í gegnum söguna til dagsins í dag. Fjallað er rækilega um stöðu kynjanna á ýmsum sviðum samfélagsins allt frá fjölskyldulífi til stjórnmála. Leitað verður svara við því af hverju staða kynjanna er ólík og hvort að þörf sé fyrir breytingar. Nemendur fá þjálfun í beitingu kynjagleraugna á hin margbreytilegu svið mannlífsins.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum jafnréttismála
  • birtingamyndum kynjaskekkju í nærsamfélaginu
  • birtingamyndum kynjaskekkju frá alþjóðlegu sjónarhorni

Leikniviðmið

  • taka þátt í umræðum um algeng álitamál sem tilheyra kynjafræðinni
  • greina stöðu og staðalmyndir kynjanna úr fjölbreyttum miðlum

Hæfnisviðmið

  • skoða umhverfi sitt með gleraugum kynjafræðinnar
  • setja sig í spor annarra
  • bera virðingu fyrir ólíkum skoðunum
Nánari upplýsingar á námskrá.is