ÚTIV1VV05(11) - Útivist snjór og snjóleysi

Vetur og vor

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Áfanginn er að mestu leyti verklegur og kynnir útivist sem hægt er að stunda. Nemendur kynnast skíðun, snjóbrettun, gerð snjóhúsa, útieldamennsku og fjallamennsku. Mikil áhersla verður lögð á að nemendur verði sjálfstæðir í óbyggðum, geti undirbúið sig eftir aðstæðum, metið aðstæður, t.d. breytt veðurskilyrði, með tilliti til öryggis og tekið skynsamar ákvarðanir varðandi t.d. leiðarval og notkun öryggisbúnaðar og að ganga eftir korti.

Þekkingarviðmið

  • útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, td. fyrir gönguferðir, skíðaferðir
  • náttúru Íslands og góðrar umgengni við hana

Leikniviðmið

  • leggja mat á aðstæður í óbyggðum
  • beita þeim sérhæfða búnaði sem notaður er til útivistar

Hæfnisviðmið

  • meta aðstæður með tilliti til öryggis og taka skynsamar ákvarðanir í samræmi við þær, sérstaklega ef breytingar verða á aðstæðum eins og t.d. breytt veðurskilyrði eða snjóalög
  • geta stundað útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, td. fyrir gönguferðir og skíðaferðir
  • ferðast um óbyggðir Íslands á öruggan og ábyrgan hátt
  • geta tekið þátt í upplýstri umræðu og rökræðum um málefni er tengjast útivist
  • vera meðvitaður um umhverfi sitt, hafa lært að njóta þess, virða og nýta á skynsamlegan hátt með sjálfbærni í huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is