SAGA3MM05(33) - Menningarsaga síðustu alda

Menningarsaga

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SAGA2YS05(21)
Í áfanganum er sjónum beint að menningarsögu Vesturlanda frá seinni hluta 19. aldar til dagsins í dag. Megináherslan verður á módernismann og þau tengsl sem hann hafði við tilurð nútímasamfélagsins. Síðasti þriðjungur áfangans er svo helgaður póstmódernismanum og þeim fjölmörgu spurningum sem upp koma í tengslum við hann. Nemendur skrifa heimildaritgerð og munu nokkrar kennslustundir lagðar undir þá vinnu.

Þekkingarviðmið

  • helstu lista- og menningarstefnum 20. aldar
  • tengslum stóratburða 20. aldar við helstu menningarstrauma hennar
  • helstu reglum og venjum við smíði heimildaritgerðar

Leikniviðmið

  • leita sér sögulegra upplýsinga með margvíslegum hætti
  • meta gildi og áreiðanleika heimilda og nýta sér fjölbreyttar tegundir þeirra
  • koma frá sér sagnfræðilegum texta á skýran hátt
  • rita heimildaritgerð samkvæmt helstu reglum og hefðum
  • meta liðna tíma á víðsýnan og umburðarlyndan máta
  • beita gagnrýninni hugsun

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um sagnfræðileg efni
  • sýna umburðarlyndi og víðsýni gagnvart sögulegum viðfangsefnum
  • meta stöðu nútímamenningar með hliðsjón af samfélagsbreytingum undangenginna áratuga og alda
Nánari upplýsingar á námskrá.is