STAR1SA05(13) - Starfsnám á vinnustað

Starfsnám á vinnustað 1

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Starfsnám gefur nemendum tækifæri til þess að kynna sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnám fer fram í skóla og á vinnustað. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.

Þekkingarviðmið

  • fjölbreyttum vinnustöðum
  • fjölbreyttum starfsheitum
  • mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum.

Leikniviðmið

  • velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
  • mæta til vinnu á réttum tíma
  • fylgja fyrirmælum
  • fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
  • fylgja samskiptareglum á vinnustað
  • fylgja öryggisreglum á vinnustað.

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í atvinnulífinu
  • hafa yfirsýn yfir mismunandi störf og starfsvettvang
  • þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem felst í þeim
  • tilheyra starfsmannahópi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is