STAR1RS05(12) - Réttindi og skyldur

Réttindi og skyldur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum þjálfast nemendur í að taka þátt í atvinnulífinu og fá fræðslu um réttindi og skyldur launþega. Kennsla fer fram í skóla og úti á vinnustöðum. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.

Þekkingarviðmið

  • fjölbreyttum vinnustöðum
  • mismunandi launakjörum í samræmi við starfshlutfall og ráðningarsamninga
  • mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
  • því að öllum réttindum fylgja ákveðnar skyldur.

Leikniviðmið

  • nálgast launaseðla í gegnum tölvu, s.s. í heimabanka
  • lesa launaseðla
  • fylgja þeim skyldum sem krafa er gerð um á vinnustöðum
  • vera meðvitaður um eigin réttindi á vinnumarkaði.

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í atvinnulífinu
  • hafa yfirsýn yfir réttindi og skyldur launþega á Íslandi
  • geta nýtt sér upplýsingar sem koma fram á launaseðli
  • taka þátt í umræðum um réttindi og skyldur á vinnustöðum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is