LÍFS1UM05(16) - Umferli

Umferli

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er fjallað um nemendasvæði í skólanum, merkingar og táknmyndir, reglur á gönguleiðum og reglur varðandi almenna umferð.

Þekkingarviðmið

  • ákveðnum svæðum í skólanum og hlutverki þeirra
  • því að skilaboð felast í merkingum
  • ýmsum reglum varðandi umferli
  • bókasafni skólans, salernum og félagsaðstöðu
  • táknmyndum og merkingu þeirra.

Leikniviðmið

  • fylgja hópi í gönguferð (ef líkamlegt ástand leyfir)
  • ganga ákveðna vegalengd (ef líkamlegt ástand leyfir)
  • nota almennar samgöngur.

Hæfnisviðmið

  • sækja ákveðna staði innan skólans og nýta sér þjónustu þeirra
  • skilja merkingar og táknmyndir í sem víðustu samhengi og tileinka sér skilaboð þeirra
  • fara eftir almennum umferðarreglum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is