LÍFS1LK05(13) - Líkaminn og tilfinningar

Líkaminn og tilfinningar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er fjallað um um tilfinningar og almenna líðan. Einnig heiti ýmissa líkamshluta og hvaða hlutverki þeir gegna. Rætt er um að líkami sé einkaeign sérhvers einstaklings.

Þekkingarviðmið

  • líkamanum og starfsemi hans
  • mismunandi tilfinningum.

Leikniviðmið

  • skilja eigin tilfinningar
  • hemja tilfinningar ef þær verða yfirdrifnar
  • virða tilfinningar annarra
  • þekkja líkama sinn, starfsemi hans og vita hvaða hlutverki helstu líkamshlutar gegna vera meðvitaður um að hann ráði yfir líkama sínum
  • þekkja einkasvæði
  • kunna að setja mörk.

Hæfnisviðmið

  • geta stjórnað tilfinningum sínum á sem bestan hátt
  • virða tilfinningar annarra
  • tileinka sér lífsstíl sem stuðlar að góðri heilsu og líkamlegum framförum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is