LÍFS1FJ05(12) - Fjölmiðlar

Fjölmiðlar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum eru mismunandi fjölmiðlar skoðaðir á gagnrýninn hátt. Fjallað er um hvernig samskiptatæki fjölmiðlar eru og áhersla er lögð á að gera nemendur meðvitaða um mikilvægi þeirra, gildi og siðgæði og þær hættur sem tengjast fjölmiðlum nútímans.

Þekkingarviðmið

  • helstu tegundum fjölmiðla
  • hugtakinu tjáningarfrelsi
  • gildi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi
  • hættum sem tengjast fjölmiðlum nútímans.

Leikniviðmið

  • nálgast mismunandi fjölmiðla óháð miðlunarformi
  • draga aðalatriði út úr mismunandi fréttatilkynningum
  • endursegja eða endurflytja afmarkað efni
  • nýta sér fjölmiðla sér til gagns og/eða gleði
  • taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir.

Hæfnisviðmið

  • vera meðvitaður um styrkleika, veikleika og hættur fjölmiðla
  • tjá sig um ýmis málefni sem fram koma í fjölmiðlum
  • nýta sér upplýsingar frá fjölmiðlum á gagnrýninn hátt
  • aðgreina auglýsingar frá öðru sem kemur fram í fjölmiðlum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is