STÆR1PH03(16) - Heimilisinnkaup

Peningar, heimilisbókhald, tekjur og útgjöld

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í áfanganum er áhersla lögð á verðútreikninga, verðsamanburð, verðgildi og þjálfun nemenda í að lesa á verðmiða í verslunum. Farið verður í gildi peninga ásamt verklegum æfingum í búðarferðum. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Þekkingarviðmið

  • því hvernig heimilisinnkaup fara fram
  • gildi peninga
  • fjölbreytileika verslana
  • mikilvægi innkaupalista
  • upplýsingum á verðmiðum og kassakvittunum.

Leikniviðmið

  • nýta sér innkaupalista
  • nota peninga eða kort
  • lesa á verðmiða
  • fara í mismunandi verslanir
  • fara yfir kassakvittun.

Hæfnisviðmið

  • búa til innkaupalista
  • versla inn fyrir heimili
  • gera verðsamanburð.
Nánari upplýsingar á námskrá.is