STÆR1PH03(15) - Fjármálalæsi

Peningar, heimilisbókhald, tekjur og útgjöld

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í áfanganum er áhersla lögð á fjármálalæsi í víðu samhengi. Farið verður yfir helstu persónulegu útgjöld í lífi ungs fólks, heimilisbókhald og gildi þess að halda utan um eigin fjármál. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi réttinda og skyldna neytenda
  • mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur
  • hvernig nýta megi greiðslukort
  • því að stundum þarf að forgangsraða í fjármálum.

Leikniviðmið

  • lesa á launaseðil eða tryggingaryfirlit
  • byggja upp sparnað á einfaldan og hagkvæman hátt
  • standa við þær skuldbindingar sem viðkomandi hefur gert.

Hæfnisviðmið

  • halda utan um eigin fjármál að öllu eða einhverju leyti
  • átta sig á tengingunni milli réttinda og skyldna.
Nánari upplýsingar á námskrá.is