STÆR1GS03(14) - Almenn stærðfræði

grunnaðgerðir

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í áfanganum er unnið með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum í daglegu lífi. Dæmi um viðfangsefni eru tölur, samlagning, frádráttur, margföldun og deiling. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Þekkingarviðmið

  • undirstöðuatriðum í reikningsaðgerðum
  • mikilvægi stærðfræðinnar í daglegu lífi
  • notkunarmöguleikum vasareiknis
  • hvernig á að finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum.

Leikniviðmið

  • nota vasareikni
  • nota algeng stærðfræðitákn
  • finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum.

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
  • fylgja fyrirmælum sem gefin eru
  • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is