STÆR1DL03(13) - Tímatal

Peningar, tímahugtök, verðgildi

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í áfanganum er áhersla lögð á tímahugtök. Unnið verður með þau á fjölbreyttan hátt, s.s. í gegnum verkefnavinnu, veraldarvefinn og verklegar æfingar. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Þekkingarviðmið

  • algengum tímahugtökum
  • vikudögum
  • mánuðum
  • dagsetningum.

Leikniviðmið

  • lesa í og/eða nýta sér dagatal
  • lesa á klukku
  • breyta dagsetningu úr rituðu máli yfir í tölustafi.

Hæfnisviðmið

  • nýta sér tímahugtök í daglegu lífi
  • átta sig á árstíðum og þeim mánuðum sem tilheyra hverri árstíð
  • nýta sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. dagatal
  • vera stundvís.
Nánari upplýsingar á námskrá.is