ENSK1TL03(12) - Tónlist og lagatextar

lagatextar, tónlist

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í áfanganum er unnið með ensku í gegnum tónlist og dægurlagatexta. Áhersla er lögð á klassíska tónlist, popp- og rokktónlist í bland við það sem er vinsælast hverju sinni. Nemendur eru hvattir til að velta fyrir sér hvað textaskáldið er að segja í textunum. Nemendur bæta þannig jafnt og þétt við orðaforða og hugtakaskilning sinn.

Þekkingarviðmið

  • hvaða sögu textaskáldin eru að miðla hverju sinni
  • því að oft má tengja saman áhugamál og nám
  • sköpun í formi ljóðagerðar og textasmíðar.

Leikniviðmið

  • hlusta á og vinna með mismunandi texta og ljóð
  • virða tónlistarsmekk annarra
  • átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi tegund tónlistar
  • taka þátt í umræðum.

Hæfnisviðmið

  • efla orðaforða sinn
  • átta sig á að margir textar hafa ákveðinn boðskap
  • spyrja spurninga og hlusta á það sem aðrir hafa áhuga á
  • láta skoðanir sínar í ljós.
Nánari upplýsingar á námskrá.is