ÍSLE1SW05(12) - Stafsetning og ritun

Stafsetning og ritun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á skapandi skrif og íslenskar bókmenntir eru í brennidepli. Nemendur kynnast helstu rithöfundum Íslands og verkum þeirra, m.a. með ýmiss konar verkefnavinnu, bæði skriflegri og munnlegri. Unnið verður markvisst að þjálfun í skrifum á örsögum og ýmiss konar lýsingum viðburða og persóna.

Þekkingarviðmið

  • nokkrum helstu rithöfundum Íslands og verkum þeirra
  • mikilvægi lesturs
  • mikilvægi þess að geta tjáð sig skýrt, jafnt munnlega sem skriflega
  • ritun mismunandi texta.

Leikniviðmið

  • lesa mismunandi texta sér til gagns
  • lesa sér til dægrastyttingar
  • tjá tilfinningar sínar og skoðanir í texta
  • rita mismunandi texta við sitt hæfi.

Hæfnisviðmið

  • tjá tilfinningar sínar skipulega í texta
  • lesa sér til dægrastyttingar
  • þekkja til helstu rithöfunda Íslands og verka þeirra
  • koma skoðunum sínum á framfæri í ræðu og riti
  • rita einfalda texta og sögur.
Nánari upplýsingar á námskrá.is