ÍÞRF1ÞÞ05(11) - Íþróttafræði

þjálfari - almennur hluti, þjálfun barna

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um hlutverk þjálfara í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Sérstaklega verður fjallað um íþróttaskóla og hreyfistundir með ungum börnum. Töluverð áhersla er lögð á hreyfiþroska og sálrænan þroska barna. Fjallað verður um skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Farið verður yfir upphitun bæði almenna og sérhæfða Einnig er lögð áhersla á að nemendur læri um uppbyggingu frjálsra félagasamtaka, sérstaklega íþróttafélaga. Nemendur læra um mikilvægi stefnumótunar og skrásetningar markmiða í félagsstarfi, um uppbyggingu félaga og kynnast skipulagi og helstu skipuritum sem starfað er eftir. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur.

Þekkingarviðmið

  • hlutverki þjálfara í íþróttum
  • tilgangi upphitunar
  • uppbyggingu frjálsra félagasamtaka
  • starfsemi íþróttafélaga, sérgreina- og fjölgreinafélaga
  • mikilvægi samvinnu og hópstarfs í frjálsum félagasamtökum
  • hlutverki sínu sem fyrirmynd.

Leikniviðmið

  • skipuleggja einstakar æfingastundir í samvinnu við kennara
  • greina á milli þjálfunar barna og fullorðinna
  • nýta sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar.

Hæfnisviðmið

  • stjórna upphitun fyrir alla aldurshópa
  • útbúa tímaseðla
  • skipuleggja þjálfun til lengri og skemmri tíma í samvinnu við kennara
  • skipuleggja keppnisferð með börnum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is