NÁMI1NH01(01) - Námstækni og hvatning

Námstækni og hvatning 1

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Meginefni áfangans er námstækni, sjálfsstyrking og einstaklingsmiðuð hvatning. Helstu efnisþættir eru fjölmargar hliðar námstækni eins og tímaskipulag, glósu- og lestrartækni. Mikilvægi þess að vera meðvitaður um eigin heilsu og þá stjórn sem haft er á eigin heilsu og velgengni. Aðal áhersla áfangans er mikið utanumhald kennara, einstaklingsmiðuð þjónusta gagnvart nemendum og mynda stuðningshóp fyrir nemendur í brottfallshættu. Ásamt þjálfun nemenda í að taka alhliða ábyrgð á sjálfum sér í námi og daglegu lífi.

Þekkingarviðmið

  • námstækni sem tæki til að ná árangri í námi og starfi
  • markmiðssetningu
  • heilsufari í víðum skilningi, eins og næringu, hreyfingu, andlegri líðan, hugarfari og svefni. Hvernig heilsufar tengist sjálfsmynd og gengi í daglegu lífi.

Leikniviðmið

  • beita góðri námstækni
  • setja sér markmið
  • taka ábyrgð á sjálfum sér í námi og daglegu lífi
  • þekkja eigin styrkleika og veikleika.

Hæfnisviðmið

  • hafa sjálfstraust í verkefnum daglegs lífs
  • skipuleggja eigin tíma
  • ná eigin markmiðum í lífinu
  • ljúka skilgreindu námi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is