VINS1RV05(11) - Vinnustaðanám

réttindi og skyldur, vinnumarkaður

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar.
Í áfanganum öðlast nemendur þekkingu og færni á hinum almenna vinnumarkaði. Nemendur kynnast nokkrum vinnustöðum og halda dagbók um störf sín þar. Nemendur kynnast hugtakinu starfsmannastefna og atriðum sem skipta máli varðandi góðan anda á vinnustað. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur læri að gera ferilskrá og átti sig á því hvaða atriði skipta máli þegar sótt er um starf.

Þekkingarviðmið

  • réttindum og skyldum á vinnumarkaði
  • mikilvægi góðra samskipta á vinnustað
  • hugtakinu starfsmannastefna
  • gerð starfsferilsskrár
  • grundvallaratriðum sem hafa ber í huga þegar sótt er um starf.

Leikniviðmið

  • gera starfsferilsskrá
  • bera sig rétt að við að sækja um starf
  • vinna verk sem honum eru falin á vinnustað.

Hæfnisviðmið

  • vinna þau verk sem honum eru falin á vinnustað á fullnægjandi hátt
  • gera starfsferilsskrá og sækja um það starf sem hann óskar sér
  • auka færni sína til tjáningar á eigin skoðunum og samskipta við annað fólk
Nánari upplýsingar á námskrá.is