MOME1NL05(11) - Matur og menning í nálægum löndum

Matur og menning í nálægum löndum

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í fyrri hluta áfangans er megináherslan lögð á matreiðslu léttra rétta (skyndibita). Þar má t. d. nefna pylsur, pizzur, hamborgara, smurbrauð, burrito og pítur. Í tengslum við matreiðsluna þurfa nemendur að leita upplýsinga á veraldarvefnum um sögu þessara rétta og vinna stutt verkefni samfara því. Nemendur annast innkaup á hráefni með hollustu og hagkvæmni í huga og laga uppskriftir að vöruúrvali. Í síðari hluta áfangans er fjallað um matarmenningu þriggja Evrópuland, þ. e. Danmerkur, Frakklands og Ítalíu. Lögð er áhersla á að nemendur kynnist menningu þessara landa í gegnum matargerðina, m. a. í gegnum kvikmyndir frá viðkomandi löndum. Ætlast er til að nemendur vinni stutt verkefni um löndin sem til umfjöllunar eru hverju sinni.

Þekkingarviðmið

  • sögu og neyslu valdra skyndibitarétta
  • ólíkum siðum við fæðuöflun og matargerð
  • tengslum valdra samfélaga við matarmenningu sína
  • mikilvægi hollrar næringar fyrir heilbrigðan líkama.

Leikniviðmið

  • matreiða létta rétti
  • vinna með ýmiss konar gögn við matreiðslu, þ.e. matreiðslubækur og hvers kyns áhöld og tæki
  • greina á milli ólíkra gerða matseldar, s.s. suðu, steikingar, ofnbökunar o.s.frv.
  • ástunda hagkvæm og umhverfisvæn innkaup til heimilis.

Hæfnisviðmið

  • miðla almennri þekkingu sinni á mat og matarmenningu í umræðum og stuttum kynningum
  • miðla leikni sinni við matseld
  • leggja mat á næringargildi og hollustu matvöru
  • haga matarinnkaupum eftir sjónarmiðum um hollustu, sjálfbærni og hagkvæmni
Nánari upplýsingar á námskrá.is