AÍÞR1AÍ02(11) - Afreksíþróttir

Afreksíþróttir

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Áfanginn er ætlaður nemendum sem æfa keppnisíþrótt með viðurkenndu íþróttafélagi. Áhersla er lögð á grunnþætti, s.s. þol, styrk, liðleika, samhæfingu, snerpu, tækni og hraða. Framkvæmdar eru mælingar á þessum þáttum sem nemendur nýta sér við að setja sér markmið í þjálfuninni og útbúa þjálfunaráætlun. Jafnframt hljóta nemendur fræðslu um næringu íþróttamanna, íþróttameiðsli, lyfjamál og markmiðssetningu. Þeir nemendur sem æfa afreksíþróttagrein á vegum íþróttafélagsins Völsungs skuldbinda sig til þess að neyta hvorki áfengis né tóbaks á meðan nám í áfanganum varir. Jafnframt getur Völsungur óskað eftir aðstoð afreksíþróttanema við þjálfun yngri flokka. Íþróttakennari annast þann hluta áfangans sem snýr að almennri fræðslu en sérhæfðari tækniþjálfun fer fram undir stjórn þjálfara í þeirri íþróttagrein sem nemandinn æfir.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð
  • líkamlegu formi og hvernig það er þjálfað markvisst og skipulega
  • markmiðssetningu til lengri og skemmri tíma og mikilvægi þess að setja sér mælanleg og raunhæf markmið
  • uppbyggingu þjálfunaráætlunar til lengri og skemmri tíma
  • áhrifum lifnaðarhátta á heilsu og árangur
  • mikilvægi fjölbreytileika í þjálfuninni og ólíkum gerðum æfinga, s.s. endurheimtaræfingum, fyrirbyggjandi æfingum og sérhæfðum líkamlegum æfingum.

Leikniviðmið

  • setja sér markmið til lengri tíma
  • meta líkamlegt form sitt með mælingum
  • meta kosti og galla sína sem íþróttamaður í þeirri íþróttagrein sem nemandinn iðkar
  • útfæra og framkvæma sérhæfðar styrktar- og tækniæfingar
  • meta fjölbreytt hreyfiform við endurheimt og viðhald líkamlegrar getu
  • setja upp þjálfunaráætlun til lengri tíma þar sem unnið er með þau markmið sem nemandi hefur sett sér.

Hæfnisviðmið

  • setja sér markmið og útbúa þjálfunaráætlun til lengri tíma sem tekur til mikilvægustu þátta þjálfunar út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
  • framkvæma þjálfunaráætlun sem hann hefur sjálfur sett upp
  • meta líkamlegt ástand sitt og velja sér æfingar út frá því
  • tileinka sér heilsusamlega lifnaðarhætti
Nánari upplýsingar á námskrá.is