SÁLF3FP05(32) - Félags- og persónuleikasálfræði

félags- og perónuleikasálfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SÁLF2ÞS05(21)
Í þessum áfanga er fjallað um tvær undirgreinar sálfræðinnar; félagssálfræði og persónuleikasálfræði. Í félagssálfræðihlutanum er sérstaklega farið yfir áhrif hópa á einstaklinga og ástæður þess að fólk breytir viðhorfum og atferli við mismunandi aðstæður. Kynntar eru rannsóknir á hlýðni, fylgispekt og hugrænu misræmi. Nemendur framkvæma ýmiss konar tilraunir sem tengjast grunnhugtökum félagssálfræðinnar. Í þeim hluta áfangans sem snýr að persónuleikasálfræði eru teknar fyrir ólíkar skilgreiningar á persónuleikahugtakinu. Mismunandi kenningar um mótun og eðli persónuleikans eru kynntar. Nemendur vinna með persónuleikapróf og verkefni þar sem þeir skoða sjálfa sig út frá kenningum um persónuleikann og sjálfsmyndina.

Þekkingarviðmið

  • nýjustu hugmyndum innan félags- og persónuleikasálfræðinnar
  • hugtökum og kenningum innan félags- og persónuleikasálfræði
  • framlagi félags- og persónuleikasálfræði til samfélagsins.

Leikniviðmið

  • fjalla um áhrif hópa á einstaklinga
  • gagnrýna og meta helstu rannsóknir í félagssálfræði
  • leggja sjálfstætt mat á ólíkar kenningar um persónuleikann
  • gagnrýna og meta mismunandi persónuleikapróf
  • fjalla um og bera saman kenningar um persónuleikann og sjálfsmyndina
  • nýta sér fræðilegan texta um sálfræði á íslensku og ensku
  • miðla á skýran og hlutlægan hátt fræðilegu efni
  • nýta sér fræðilegar heimildir á sviðinu.

Hæfnisviðmið

  • mynda sér skoðanir sem byggjast á gagnrýnni hugsun og taka þátt í umræðum um sálfræði
  • tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
  • sýna frumkvæði í námi
  • beita öguðum vinnubrögðum, axla ábyrgð á námi sínu og vinna í samvinnu við aðra
  • vinna úr og leggja mat á rannsóknargögn
Nánari upplýsingar á námskrá.is