ÍSLE2MB05(11) - Bókmenntir, ritun og málnotkun

bókmenntir og ritun, málnotkun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur efli færni sína á öllum sviðum lestrar og skoði ólíka texta út frá bókmenntalegu og málfarslegu sjónarmiði. Stefnt er að því að nemendur þjálfist í fjölbreyttri ritun og tjáningu og læri að beita fræðilegum hugtökum við umfjöllun, rökræður og samanburð ólíkra texta. Jafnframt er stefnt að því að nemendur verði færir um að nýta sér þekkingu sína og þjálfun við eigin textagerð. Í námi sínu í áfanganum fá nemendur tækifæri til að nota tölvu, handbækur og sem fjölbreyttust hjálpargögn. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslustundum.

Þekkingarviðmið

  • forsendum góðrar framsagnar og eðlilegrar framkomu við flutning texta
  • mismunandi málsniðum og sérkennum talmáls og ritmáls
  • helstu atriðum varðandi ritgerðarsmíðar
  • helstu hugtökum í bókmenntafræði
  • helstu hugtökum í bragfræði
  • íslenskri stafsetningu og greinarmerkjasetningu
  • helstu hugtökum í setningafræði.

Leikniviðmið

  • lesa og tjá sig um fjölbreytta texta frá ólíkum tímum
  • skrifa texta á vönduðu máli þar sem samhengis í efni er gætt
  • ganga frá ritgerð á viðeigandi hátt í tölvu
  • nota handbækur og hjálparforrit varðandi stafsetningu, meðferð heimilda og framsetningu texta
  • beita hugtökum í bókmenntafræði í umfjöllun um bókmenntir
  • beita hugtökum í bragfræði í umfjöllun um bundið mál
  • beita réttri stafsetningu og greinarmerkjasetningu
  • beita hugtökum í setningafræði í umfjöllun um málfar.

Hæfnisviðmið

  • flytja stutta framsögu á skýran og áheyrilegan hátt
  • skrifa bókmenntaritgerð á vönduðu máli þar sem samhengis í efni er gætt og farið er að reglum um meðferð heimilda
  • túlka valin ljóð og átta sig á byggingu þeirra
  • gera sér grein fyrir grunnatriðum í setningafræði íslenskrar tungu
  • fylgja reglum um stafsetningu og greinarmerkjasetningu við að koma frá sér rituðu máli
  • axla ábyrgð á eigin námi
  • taka virkan þátt í kennslustundum
  • beita lýðræðislegum vinnubrögðum í hópvinnu
  • tjá skoðun sína á námsefni, námsmati og fyrirkomulagi kennslu
  • tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is