STÆR3DF05(41) - Deildunarreikningur

deildun, föll, markgildi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR2VH05(31)
Í áfanganum er lögð áhersla á nákvæmni í framsetningu við lausnir verkefna og dæma. Fjallað er almennt um föll og logra, en aðalefni áfangans er markgildi falla og deildunarreikningur.

Þekkingarviðmið

  • vaxtarhraða falla
  • markgildi falla
  • deildunarreglum allra helstu falla
  • logrum og vísisföllum.

Leikniviðmið

  • finna markgildi falla
  • reikna hallatölu falla
  • deilda allar helstu gerðir falla
  • nota deildunarreglur, s.s. keðjuregluna og reglu um deildun margfeldis falla
  • nota logra.

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar og vinna á skipulegan hátt
  • útskýra hugmyndir sínar og verk
  • fylgja fyrirmælum sem gefin eru
  • lesa úr stærðfræðilegum upplýsingum
  • beita skipulegum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
Nánari upplýsingar á námskrá.is