EFNA3GE05(31) - Gaslögmálið og jafnvægi

gaslögmálið, hraði efnahvarfa, orka í efnahvörfum

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA2AE05(21)
Í áfanganum er fjallað um samband hita, þrýstings og rúmmáls fyrir gastegundir. Þá er fjallað um helstu gerðir efnahvarfa og farið dýpra í magnbundna útreikninga en gert var í EFNA2AE05(21). Einnig er fjallað um ýmsa þætti tengda efnahvörfum svo sem varmabreytingar og hraða efnahvarfa. Lagður er grunnur að skilningi nemenda á jafnvægishugtakinu. Verklegar æfingar og skýrslugerð fær meira vægi en áður.

Þekkingarviðmið

  • gaslögmálinu og hugmyndum um kjörgas
  • varmabreytingum í efnahvörfum
  • myndunarvarma
  • hraða efnahvarfa og tengslum hvarfgangs og hraðajöfnu
  • virkjunarorku
  • ytri þáttum sem hafa áhrif á jafnvægisstöðu efnahvarfa.

Leikniviðmið

  • nota gaslögmálið til að reikna rúmál, hita og þrýsting
  • framkvæma útreikninga tengda massahlutföllum í efnahvörfum
  • nota lögmál Hess til að reikna hvarfavarma
  • lesa úr hraðajöfnu efnahvarfa
  • rita jafnvægislíkingu efnahvarfs og nota hana til að reikna jafnvægisfasta eða jafnvægisstyrk.

Hæfnisviðmið

  • útskýra samband þrýstings, rúmmáls og hita fyrir kjörgas
  • útskýra hlutþrýsting og þekkja samband hlutþrýstings, mólstyrks og heildarþrýstings
  • útskýra hugtakið hvarfavarmi
  • útskýra áhrif hita, mólstyrks og hvata á hraða efnahvarfa
  • beita jafnvægislíkingunni við útreikninga
  • fjalla um niðurstöður tilrauna á skýrsluformi
Nánari upplýsingar á námskrá.is