EFEÐ1EE05(11) - Efna- og eðlisfræði - orka

Efna- og eðlisfræði - orka

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum eru tekin fyrir viðfangsefni úr náttúru og nútímatækni þar sem koma fyrir kenningar og grundvallarlögmál eðlis- og efnafræðinnar. Sérstök áhersla er lögð á orkulögmálið. Áfanginn er bæði hugsaður sem undirbúningsáfangi fyrir nemendur á náttúruvísindabraut og sem raungreinaáfangi fyrir nemendur á öðrum brautum. Fjallað er um hreyfingu, hraða og hröðun, vinnu og orku. Einnig er rætt um atómkenninguna, frumefni og efnasambönd, atóm, sameindir og jónir, efnahvörf og efnajöfnur. Fjallað er um andrúmsloftið, bruna eldsneytis og efnaorku, loftmengun, rafhlöður og rafstraum auk þess sem rætt er um sólarorku og nýtingu hennar.

Þekkingarviðmið

  • hugtakinu vísindi og hvað felst í vísindalegri aðferð
  • orkubúskap jarðar
  • orkuvinnslu og orkunotkun Íslendinga í samanburði við önnur lönd
  • atómkenningunni, gerð frumefnis, efnasambanda og efnablandna
  • lotukerfinu
  • myndun sameinda og jóna
  • efnajöfnum
  • efnasamsetningu andrúmslofts og helstu mengunarvöldum
  • hreyfifræði hluta sem hreyfast eftir beinni línu
  • hugmyndum um eðli rafsegulbylgna.

Leikniviðmið

  • túlka einfaldar myndir og gröf
  • flokka efni náttúrunnar í frumefni, efnasambönd og efnablöndur
  • nýta sér lotukerfið við lausn verkefna
  • lesa út úr og skrifa einfaldar efnajöfnur
  • reikna meðalhraða, stundarhraða og hröðun hluta sem hreyfast eftir beinni línu
  • tjá sig sig á skýran og skapandi hátt um verkefni og úrlausnir þeirra.

Hæfnisviðmið

  • miðla niðurstöðum úr verkefnum með öðrum
  • tengja þætti efna- og eðlisfræðinnar við sitt daglega líf og umhverfi
  • taka þátt í upplýstri umræðu um málefni sem snerta vísindi tækni og umhverfismál
Nánari upplýsingar á námskrá.is