ÍÞRÓ1HH01(34) - Hreyfing og heilsurækt 4

hreyfing og heilsurækt

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: ÍÞRÓ1GL03(21)
Meginviðfangsefni áfangans er alhliða og fjölbreytt líkamsrækt. Áhersla er lögð á góða hreyfingu þar sem unnið er með kraft- og þolæfingar. Áfanginn inniheldur mismunandi þætti, s.s. knattleiki, hlaup, þrekþjálfun og sund. Efnisatriði áfangans eru: heilsurækt, upphitun, púls, þolþjálfun, þjálfunaraðferðir, kraftþjálfun, teygjuaðferðir, slökun, öndun og líkamsstaða.

Þekkingarviðmið

  • fjölbreyttri líkams- og heilsurækt í formi ýmissa leikja og íþrótta
  • aðferðum til líkamsræktar í fjölbreyttu umhverfi
  • mikilvægi slökunar, öndunar og líkamsstöðu
  • heppilegri uppbyggingu hreyfingarlotu (tímaseðlagerð/æfingaráætlun).

Leikniviðmið

  • leysa af hendi fjölbreytt verkefni sem snúa að þjálfun þreks, þols og liðleika
  • meta eigið líkamsástand með mismunandi aðferðum
  • útbúa æfingaáætlun sem miðast við að auka þol og þrek
  • nota góða vinnutækni og vinnustellingar.

Hæfnisviðmið

  • efla á markvissan hátt þol sitt, styrk og liðleika
  • útfæra fjölbreytta upphitun fyrir líkams- og heilsurækt
  • framkvæma eigin þjálfunaráætlun sem miðar að því að auka þol og þrek
  • nýta sér upplýsingatækni við alhliða líkams- og heilsurækt og mat á eigin heilsu
Nánari upplýsingar á námskrá.is