grunnþættir í almennri líkams- og heilsurækt
	
		
			Einingafjöldi: 3
							Þrep: 1
									Forkröfur: ÍÞRÓ1GL03(11)					
	
		Áfanginn er bæði verklegur og bóklegur.  Áhersla er lögð á lífstílsbreytingar.  Í verklega hlutanum er lögð áhersla á grunnþætti þols, styrktaræfingar og liðleika.  Við þjálfun þols eru fjölbreyttar aðferðir notaðar, s.s. útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun, leikir og fjölbreyttar íþróttagreinar.  Í styrktarþjálfun eru ýmsar æfingar notaðar, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd og lyftingar í tækjasal.  Við þjálfun liðleika er áhersla lögð á teygjuæfingar í lok æfinga.  Við þjálfun allra framangreindra þátta er leitast við að miða æfingar við áhuga og getu hvers nemanda.  Í bóklega hlutanum er fjallað um heilsu og heilbrigðan lífsstíl.  Nemendur fræðast um líkamleg og sálræn áhrif reglulegrar og skipulegrar líkamsþjálfunar og ábyrgð einstaklingsins á eigin líkama.  Fjallað er um markmiðssetningu, bæði til lengri og skemmri tíma, þar sem nemendur gera eigin þjálfunaráætlun í samræmi við þau markmið sem þeir setja sér.  Þjálfunaráætlunin byggir á þeirri þekkingu sem nemendur hafa aflað sér um þol, styrk og liðleika í fyrri íþróttaáfanga.  Áfram er fjallað um mikilvægi hreyfingar hjá öllum aldurshópum, sérstaklega hjá fólki á framhaldsskólaaldri.  Fjallað er um þrjú algengustu þjálfunarformin; þol, styrk og liðleika, og hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers forms ræddar.  Rætt er um uppbyggingu hreyfingarlotu með áherslu á áhrif upphitunar og niðurlags á líkamann.  Fjallað er um áhrif vímuefna á heilsu og líkamlegt form einstaklinga.  Í áfanganum er jafnframt unnið áfram með verkefnið „Heilsumarkmiðin mín“ sem byrjað var á í ÍÞRÓ1GL03(11).	
			
			Þekkingarviðmið
			
									- alhliða líkams- og heilsurækt
 
									- æfingum og leikjum sem viðhalda og bæta tækni íþróttagreina
 
									- styrkjandi og mótandi æfingum fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans
 
									- skipulagningu eigin þjálfunar
 
									- forsendum og áhrifum þjálfunar á eigin líkama og heilsu
 
									- orkuefnunum kolvetni, próteinum og fitu
 
									- heilsusamlegu mataræði
 
									- heilbrigðum svefnvenjum fyrir sinn aldurshóp
 
									- áhrifum lífsstíls á heilsu á andlega og líkamlega sjúkdóma
 
									- uppbyggingu æfinga og tímaseðla.
 
							
		 
	
			
			Leikniviðmið
			
									- nýta sér ýmsar leiðir til að stunda styrktarþjálfun, þolþjálfun og bæta liðleika sinn
 
									- halda áfram SMART-markmiðssetningu í tengslum við hreyfingu, mataræði, svefnvenjur og andlega líðan eftir því hvað á við um hann sjálfan.
 
							
		 
	
			
			Hæfnisviðmið
			
											- greina hvaða þættir í eigin lífsstíl hafa áhrif á andlega og líkamlega heilsu og breyta eigin lífsstíl ef þörf er á
 
															- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem varða þjálfun á eigin líkama
 
															- bæta eða viðhalda þoli, liðleika og styrk
 
										
		 
	
	Nánari upplýsingar á námskrá.is