grunnþættir í almennri líkams- og heilsurækt
	
		
			Einingafjöldi: 3
							Þrep: 1
									Forkröfur: Engar					
	
		Áfanginn er bæði verklegur og bóklegur.  Í verklega hlutanum er lögð áhersla á grunnþætti þols, styrktaræfingar og liðleika.  Við þjálfun þols eru fjölbreyttar aðferðir notaðar, s.s. útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun, leikir og fjölbreyttar íþróttagreinar.  Í styrktarþjálfun eru ýmsar æfingar notaðar, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd og lyftingar í tækjasal.  Við þjálfun liðleika er áhersla lögð á teygjuæfingar í lok æfinga.  Við þjálfun allra framangreindra þátta er leitast við að miða æfingar við áhuga og getu hvers nemanda.  Í bóklega hlutanum er fjallað um heilsu og heilbrigðan lífsstíl.  Rætt er um mikilvægi hreyfingar hjá öllum aldurshópum, þó sérstaklega hjá fólki á framhaldsskólaaldri.  Fjallað er um þrjú algengustu þjálfunarformin; þol, styrk og liðleika og hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers forms ræddar.  Rætt er um uppbyggingu hreyfingarlotu með áherslu á áhrif upphitunar og niðurlags á líkamann.  Fjallað er um áhrif vímuefna á heilsu og líkamlegt form einstaklinga.  Í áfanganum er jafnframt unnið með verkefnið „Heilsumarkmiðin mín“ þar sem nemendur fá markvissa fræðslu um hreyfingu, mataræði, svefnvenjur og andlega líðan og setja sér raunhæf og mælanleg markmið (SMART-markmið) í tengslum við þessa þætti.	
			
			Þekkingarviðmið
			
									- almennum ávinningi af heilbrigðum lífsstíl
 
									- mikilvægi hreyfingar hjá sínum aldurshópi
 
									- mikilvægi upphitunar fyrir áreynslu og niðurlags eftir áreynslu
 
									- fjölbreyttum þjálfunaraðferðum sem taka til þols, styrks og liðleika
 
									- heppilegri uppbyggingu hreyfingarlotu (tímaseðlagerð/æfingaráætlun)
 
									- heilbrigðum svefnvenjum fyrir sinn aldurshóp
 
									- heilsusamlegu mataræði
 
									- lífstílstengdum atriðum sem hafa jákvæð áhrif á andlega líðan.
 
							
		 
	
			
			Leikniviðmið
			
									- auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta áhuga hans og getu
 
									- reikna út æfingarpúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
 
									- beita aðferðum til að mæla þol, styrk og liðleika
 
									- búa til skipulagða og áhugaverða hreyfingarlotu (tímaseðil/æfingaráætlun)
 
									- setja sér SMART-markmið í tengslum við hreyfingu, mataræði, svefnvenjur og andlega líðan eftir því hvað á við um hann sjálfan.
 
							
		 
	
			
			Hæfnisviðmið
			
											- viðhalda eða bæta eigin líkamshreysti
 
															- nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu inn í daglegt líf sitt
 
															- gera sér grein fyrir mikilvægi heilbrigðra svefnvenja, hreyfingar og góðs mataræðis á andlega og líkamlega heilsu
 
										
		 
	
	Nánari upplýsingar á námskrá.is