STÆR2XZ05(11) - Algebra, hnitakerfið, hornaföll, jöfnur og rúmfræði

Algebra, hnitakerfið, hornaföll., jöfnur, rúmfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Fjallað er um bókstafareikning, jöfnur, hnitakerfi, jöfnu beinnar línu, rúmfræði og hornaföll.

Þekkingarviðmið

  • undirstöðuatriðum algebru
  • lausnum á jöfnum
  • reikniformúlum
  • talnahlutföllum og prósentum
  • rétthyrndu hnitakerfi
  • jöfnu beinnar línu
  • frumhugtökum rúmfræðinnar
  • línum og hornum í þríhyrningi
  • flatarmáli og rúmmáli
  • einslögun
  • Pýþagórasarreglu
  • hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningi
  • sinus og cosinus reglunum.

Leikniviðmið

  • nota hlutföll í útreikningum
  • skilja samhengi talna og algebru, liða og þátta
  • setja upp og leysa verkefni sem fela í sér jöfnur
  • nota rétthyrnt hnitakerfi og setja fram jöfnu fyrir beina línu
  • reikna rúmmál og flatarmál allra helstu forma
  • nota hornaföll í útreikningi á þríhyrningum.

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar og vinna á skipulegan hátt
  • útskýra hugmyndir sínar og verk
  • fylgja fyrirmælum sem gefin eru
  • lesa úr stærðfræðilegum upplýsingum
  • beita skipulegum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
Nánari upplýsingar á námskrá.is