LÍFF4VE05(31) - Verkefnaáfangi í líffræði

verkefnalíffræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Forkröfur: A.m.k. einn áfangi í líffræði á 3. þrepi (vistfræði, líffæra- og lífeðlisfræði eða erfðafræði). Æskilegt að hafa einnig lokið a.m.k. fyrri áfanga í tölfræði.
Nemandinn velur sér viðfangsefni innan líffræðinnar í samráði við kennara. Verkefnið getur t.d. verið rannsóknarverkefni, sem lýkur með skýrslu, eða heimildaritgerð. Nemandinn vinnur síðan sjálfstætt eða í samvinnu við kennara eftir eðli verkefnisins að gagnasöfnun og skilar rökstuddum (e.t.v. tölfræðiprófuðum) niðurstöðum í ritgerðar- eða skýrsluformi.

Þekkingarviðmið

  • því viðfangsefni, sem rannsakað er hverju sinni

Leikniviðmið

  • gera rannsóknaráætlanir
  • greina mismunandi umfjöllun um líffræðileg efni, t.d. hvað varðar heimildaöflun
  • tengja saman þekkingu úr ólíkum fögum, svo sem líffræði og tölfræði á mismunandi vegu
  • móta eigin afstöðu studda vísindalegum rökum

Hæfnisviðmið

  • afla og miðla upplýsingum um líffræðileg viðfangsefni
  • gera áætlanir um rannsóknaraðferðir
  • vinna sjálfstætt og með öðrum
  • Auka innsæi sitt við lausn líffræðilegra viðfangsefna
Nánari upplýsingar á námskrá.is