LÍFF2UM05(12) - Umhverfisfræði

Umhverfisfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Áhrif manna á umhverfið, svo sem eyðing búsvæða, útrýming tegunda, mengun og áhrif hennar á lífríkið og ofveiði. Nútíma aðferðir við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda ásamt aðferðum við að endurheimta röskuð búsvæði (vistheimt) kynntar. Námsferðir og/eða verklegar æfingar eftir því sem kostur er.

Þekkingarviðmið

  • áhrifum mannsins á umhverfi sitt, bæði staðbundnum og á heimsvísu sem og tímabundnum eða langvarandi
  • helstu aðferðum við að "gera við" umhverfisspjöll
  • hvernig halda má umhverfisáhrifum mannsins í lágmarki

Leikniviðmið

  • spá fyrir um umhverfisáhrif framkvæmda, svo sem af völdum mengunar eða ofveiði

Hæfnisviðmið

  • rökræða umhverfisáhrif mannsins, bæði staðbundið og á heimsvísu sem og tímabundið eða langvarandi
  • nýta þekkingu sína og leikni til að leysa verkefni, sem eru sambærileg en ekki þau sömu og hann hefur áður leyst,
Nánari upplýsingar á námskrá.is