EFNA3LE05(51) - Lífefnafræði

lífefnafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA3LR05(31)
Optískur ísómerismi. Efnaflokkar frumunnar, bygging og starfsemi. Almennar næringarþarfir, þ.m.t. vítamín og steinefni. Efnafræði utanfrumuvökva. Orkubúskapur og helstu efnaskiptaferli líkamans.

Þekkingarviðmið

  • Optískum ísómerisma
  • Fæðuefnaflokkunum; byggingu og starfsemi
  • Byggingu og starfsemi enzýma
  • Bygging og starfsemi kjarnsýra
  • Almennum næringarþörfum og þætti vítamína og steinefna í þeim
  • Mikilvægi ýmiss konar utanfrumuvökva
  • Orkubúskap líkamans
  • Helstu efnaskiptaferlum líkamans

Leikniviðmið

  • Teikna og útskýra byggingarformúlur lífefna, svo sem sykra, fituefna, próteina og kjarnsýra
  • Sýna hvernig smásameindir mynda stórsameindir og hvernig stórsameindir brotna niður í smásameindir
  • Útskýra starfsemi hvatbera hvað varðar orkubúskap sykra, fituefna og próteina
  • Lýsa enzýmstýringum efnahvarfa

Hæfnisviðmið

  • Tengja saman efnaskipti frumunnar og líkamans í eina heild
  • Afla sér frekari þekkingar í lífefnafræði
  • nýta þekkingu sína og leikni til að leysa verkefni, sem eru sambærileg en ekki þau sömu og hann hefur áður leyst,
Nánari upplýsingar á námskrá.is