Lýðheilsa - verklegt og bóklegt
	
		
			Einingafjöldi: 2
							Þrep: 1
								
	
		Í verklega hlutanum er lögð áhersla á grunnþætti þols, styrktaræfingar og liðleika. Þol: Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar til að auka úthald, s.s útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun,leikir og  fjölbreyttar íþróttagreinar. Reynt verður að hafa æfingar við áhuga, hæfi og getu hvers og eins. Styrktaræfingar: Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar til að bæta líkamsstyrk, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd eða í tækjasal. Reynt verður að hafa æfingar við áhuga, hæfi og getu hvers og eins. Liðleiki: Lögð verður áhersla á teygjuæfingar eftir hvern tíma og miklvægi þeirra.
Í bóklega hlutanaum verður fjallað um heilsu og hvað heilbrigður lífstíll er. Fjallað verður almennt um hreyfingu og mikilvægi hennar hjá öllum aldurshópum, þó verður sérstök áhersla á framhaldsskólaaldurinn. Farið verður yfir þrjú algengustu þjálfunarformin (þol, styrkur og liðleiki) og hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers forms skoðuð. Farið verður yfir áhrif vímuefna (tóbak, áfengis og lyfja) á heilsu og líkamlegt form einstaklinga. Farið er yfir uppbyggingu á hreyfingarlotu/æfingu með áherslu á upphitun og niðurlags og áhrifum þeirra á líkamann. 
	
			
			Þekkingarviðmið
			
									- hvað almennt heilbrigði er
- mikilvægi hreyfingar hjá sínum aldurshópi
- góðs lífsstíls sem inniheldur hreyfingu
- mikilvægi upphitunar fyrir áreynslu og niðurlags eftir áreynslu
- fjölbreyttum þjálfunaraðferðum innan þols, styrks og liðleika
- uppbyggingu hreyfingarlotugerðar (tímaseðlagerð/áætlun)
 
	
			
			Leikniviðmið
			
									- að auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
- að reikna út æfingarpúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
- aðferðum til að mæla þol, styrk og liðleika
- búa til skipulagðan og áhugaverðan tímaseðil/æfingu
 
	
			
			Hæfnisviðmið
			
											- nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
- nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu í daglegt líf eftir bestu getu
- viðhalda eða bæta eigið líkamshreysti
 
	
	Nánari upplýsingar á námskrá.is