HEIV1HV05 - Heimilisviðhald

Heimilisviðhald

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum læra nemendur að sinna heimilisviðhaldi af ýmsu tagi. Nemendur þjálfast í að sinna þeim verkefnum sem til falla innan veggja heimilis og átta sig á hvað hægt er að gera sjálfstætt og hvenær þarf að kalla til iðnaðarmenn. Nemendur fræðast jafnframt um helstu hættur inni á heimilum og læra varnir og viðbrögð við þeim.

Þekkingarviðmið

  • grunnatriðum varðandi virkni rafmagns og helstu hugtökum og merkingum er því tengjast
  • helstu reglugerðum um raforkuvirki
  • einkennum raka í húsum, undirliggjandi ástæðum hans og helstu leiðum til að bregðast við honum
  • hvernig heimilisraftafla virkar
  • helstu vírusvörnum í tölvum
  • bruna- og þjófavörnum á heimilum
  • viðbrögðum við náttúruhamförum af ýmsu tagi

Leikniviðmið

  • framkvæma einföld verkefni tengdum raftækjum á heimilinu
  • sinna öllu algengu viðhaldi á vatnstækjum á heimilinu
  • setja upp helstu afþreyingartæki heimilisins, s.s. sjónvarp, myndspilara, flakkara og allskyns afruglara og beina (router)
  • setja upp heimilistölvu og tengja við netið í gegnum beini (router) og þráðlaust net
  • tengja helstu íhluti við tölvu
  • gera við gírahjól
  • sjá um einfaldar húsgagnaviðgerðir, svo sem að pússa upp, bera á og skipta um einföld áklæði
  • meta hvenær þörf er á að kalla til fagmenn til að sinna heimilisviðhaldi

Hæfnisviðmið

  • sinna öllu almennu heimilisviðhaldi
  • efla læsi sitt í víðum skilningi
Nánari upplýsingar á námskrá.is