ÍSLE3YN05(44) - Yndislestur

yndislestur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE3BÓ05(31)
Áfanganum er ætlað að ýta undir yndislestur nemenda. Nemandi velur í samráði við kennara sex skáldsögur til lestrar og gerir grein fyrir þeim á munnlegan eða skriflegan hátt. Tvær skáldsögur mega vera þýddar. Æskilegt er að nemandi leitist við að velja ólíkar tegundir skáldsagna. Heildarblaðsíðufjöldi bókanna má ekki vera undir 1000 bls.

Þekkingarviðmið

  • nokkrum ólíkum tegundum skáldsagna
  • nokkrum íslenskum (og erlendum) skáldsagnahöfundum
  • bókmenntafræðilegum hugtökum sem notuð eru í umfjöllun um bókmenntir.

Leikniviðmið

  • lesa ólíkar tegundir skáldsagna
  • gera grein fyrir skáldsögum með aðstoð bókmenntafræðilegra hugtaka.

Hæfnisviðmið

  • lesa sér til gagns og ánægju
  • nýta sér bókmenntafræðileg hugtök til að dýpka skilning sinn á bókmenntaverkum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is