ÍSLE3MI05(41) - Mál og bókmenntir frá siðaskiptum til aldamótanna 1900

mál og bókmenntir frá siðaskiptum til aldamótanna 1900

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE2BÓ05(31)
Í áfanganum er fjallað um tengsl máls, bókmennta og þjóðfélags frá siðaskiptum fram yfir aldamótin 1900. Vakin er athygli á því hvernig málfar íslenskra bókmennta, og bókmenntirnar sjálfar, endurspegla þjóðfélagsaðstæður og menningarlíf, tíðaranda, strauma og stefnur á tímum siðaskipta, lærdómsaldar, upplýsingar, rómantíkur og raunsæis. Nemendur kynnast hugmyndum manna um íslenska tungu og viðleitni þeirra til málhreinsunar. Nemendur fá einnig tækifæri til að tjá sig í ræðu og riti um einstök verk og höfunda þeirra. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslustundum.

Þekkingarviðmið

  • hugtökunum lærdómsöld, upplýsing, rómantík og raunsæi þegar fjallað eru um bókmenntir
  • áhrifum erlendra menningarstrauma á íslenskar bókmenntir og málfar tímabilsins
  • nokkrum helstu höfundum og verkum tímabilsins
  • einkennum texta sem ritaðir voru á tímabilinu
  • algengum bragreglum og helstu bragarháttum
  • helstu baráttumönnum íslenskrar málhreinsunar á tímabilinu og hugtakinu hreintungustefna
  • tökuorðum, slettum og slangri frá ýmsum tímum sögunnar
  • nýyrðum frá 19. öld
  • erlendum áhrifum á íslenskt mál frá siðaskiptum til nútíma.

Leikniviðmið

  • lesa texta sem ritaðir voru á tímabilinu frá siðaskiptum til 1900
  • lesa upphátt úr bókmenntatextum frá tímabilinu með áherslu á stíl og stílbrigði
  • greina algengustu stílbrögð í texta, bæði bundnu mál og óbundnu
  • flytja fyrirlestur um valin bókmenntaverk og höfunda þar sem gætt er að framkomu og framsögn
  • skrifa bókmenntarigerð á vönduðu máli þar sem gætt er að samhengi í efni og meðferð heimilda
  • nota handbækur og hjálparforrit við stafsetningu, meðferð heimilda og framsetningu texta.

Hæfnisviðmið

  • beita bragreglum og stílbrögðum í skapandi skrifum
  • átta sig á einkennum bókmennta á tímabilinu og áhrifum þeirra á listir og menningu í nútímanum
  • tjá sig munnlega um efni áfangans með áherslu á skýra framsögn og örugga framkomu
  • skrifa vandaðan texta þar sem samhengis í efni er gætt og heimildir eru notaðar á ábyrgan hátt
  • axla ábyrgð á eigin námi
  • taka virkan þátt í kennslustundum
  • beita lýðræðislegum vinnubrögðum í hópavinnu
  • tjá skoðun sína á námsefni, námsmati og fyrirkomulagi kennslu
  • tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is