Húslestur 15.08.2025

6. tbl. 37. árg. föstudagurinn 15. ágúst 2025. Ritstj. og ábm. Arna Ýr Arnarsdóttir

Kæru nemendur, velkomin til starfa á nýju skólaári!

Húslestur hefur ýmsar upplýsingar að geyma. Lesið hann vandlega. Lesið einnig vel um brautalýsingar og áfanga á vef skólans. Þá er oft ýmsar upplýsingar og tilkynningar að finna á tilkynningatöflu við nemendainngang. Nemendur munu einnig fá sendar upplýsingar í tölvupósti og mikilvægt að fylgjast vel með.

Skrifstofa skólans opnar kl. 8:10 á daginn.

Haustönn hefst með skólasetningu í sal skólans miðvikudaginn 20. ágúst 2025 klukkan 10:00, örtímar hefjast svo að henni lokinni klukkan 10:30, örtímatöflu má sjá í þessum Húslestri. Kennsla hefst svo samkvæmt stundatöflu, fimmtudaginn 21. ágúst klukkan 08:10.

Starfsbraut byrjar miðvikudaginn 20. ágúst klukkan 08:10.

Athugið að skólagjöld þurfa að hafa verið greidd til þess að hægt sé að opna Innu. Varðandi dagskrá annarinnar má nefna að tvær vörðuvikur verður haldnar 15.september-29.september og 10. nóvember -14. nóvember. Próf verða frá 8. desember til 18. desember og önninni lýkur með prófsýningu 19. desember.

Starfsfólk skólans
Skólameistari: Halldór Jón Gíslason. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Áfangastjóri og fjármálastjóri: Arna Ýr Arnarsdóttir. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Námsráðgjafi: Elín Pálmadóttir. Viðtalstímar verða auglýstir síðar.
Skólahjúkrunarfræðingur: Díana Jónsdóttir. Viðtalstímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12-14.
Skólaritari, umsjón með bókasafni og skjalavörslu: Guðný Margrét Eyjólfsdóttir Ritari er við kl. 8:10-15 mánudaga til fimmtudaga, föstudagar frá 8:10-12.
Umsjónarmaður húsnæðis: Ingvar Berg Dagbjartsson
Umsjónarmaður tölvukerfis: Róbert Bjarnason. Almennur viðverutími á mánud. kl. 10-11 og fimmtud. kl. 10-11.

Kennarar á haustönn 2025
Arna Ýr Arnarsdóttir: Hagnýt fjármál.
Arnþór Hermansson: Stærðfræði.
Ásta Svavarsdóttir; Íslenska.
Björgvin Friðbjarnarson; Efnafræði, efna- og eðlisfræði og lífræn efnafræði.
Elín Pálmadóttir Félagsvísindi og íþróttir.
Elsa Björk Skúladóttir; Starfsbraut.
Karolína Kristín Gunnlaugsdóttir; Saga, afbrotafræði, hagnýt fjármál og lífsleikni.
Rakel Dögg Hafliðadóttir; Sálfræði, félagsvísindi og stærðfræði.
Sigurður Narfi Rúnarsson; Rafíþróttir, fablab, heimspeki og saga.
Smári Sigurðsson Enska og þýska.

Allir kennarar hafa viðtalstíma og verða þeir auglýstir síðar á töflu á nemendagangi.

Helga Björg Sigurðardóttir Heilsunudd.

Berglind Ólafsdóttir Sjúkraliðabrú.

Leiðbeinendur
Alexia Annisius Askelöf
Anna Guðmundsdóttir
Arna Þórarinsdóttir

Efnisyfirlit.

1. Umsjónakennarar og umsjónatímar
2. Inna og innuaðgangur
3. Húsnæði
4. Skólareglur
5. Töflubreytingar
6. Örtímatafla
7. Íþróttir
8. Kennsluvefur
9. Heilsunudd
10. Aðrar upplýsingar