Húslestur 13.11.2023

9.tbl. 35.árgangs fimmtudaginn 13.nóvember 2023. Ritstj. og ábm. Halldór Jón Gíslason

Efni:

1. Þriðja fjarvistartalning annarinnar. Viðmið 90% á tímabilinu. Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.

Hér má sjá mætingarreglur FSH.

2. Vali fyrir vorönn 2024 er lokið fyrir dagskólanema. Þeim, sem hugsanlega gleymdu að velja er bent á að hafa samband við aðstoðarskólameistara. Haft hefur verið samband við nemendur á heilsunuddbraut varðandi valið. Fjarnemar sem vilja velja fyrir næstu önn eru kvattir til þess að hafa samband við aðstoðarskólameistara. Ef þú hefur gleymt að velja viljum við biðja þig að hafa samband sem fyrst.

3. Drög að próftöflu haustannar 2023 liggja nú fyrir. Hægt er að skila inn athugasemdum til aðstoðarskólameistara til 14.nóvember.

4. Nemendur, sem þjást af prófkvíða eða telja sig þurfa á sérúrræðum að halda við fyrirlögn prófa, er bent á að hafa samband við námsráðgjafa sem allra fyrst hafi þeir ekki nú þegar gert það.

5. Innritun fyrir dagskóla á vorönn 2023 hófst 1. nóvember og lýkur 30. nóvember. Þeir sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn þurfa ekki að innrita sig sérstaklega. Hægt er að sækja um í fjarnám til 12. janúar næstkomandi.

6. Miðannarmati er lokið. Hér má lesa um námsmat skólans og eru upplýsingar um miðannarmat þar á meðal. Nemendur eru hvattir til að skoða það vel. Haft verður samband við aðstandendur ólögráða nemenda sem hafa fengið D í einhverjum áfanga á miðannarmati eða þrjú eða fleiri C.

7. Brautaskipti: Nemendur sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.